Skilmálar og skilyrði

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum sem dreifðar eru af Íslandspósti gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Miaverslun.is ber
samkvæmt þessu ekki ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Miaverslun.is til viðkomandi er tjónið á
ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf.

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer
fram. Þegar neytandi verslar í vefverslun Miaverslun.is er hægt að fá pöntunina heimsenda.

Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingatími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingatími er mismunandi eftir því hvar neytandi býr.

Pantanir á höfuðborgarsvæðinu verða keyrðar út af Miaverslun.is eða Dropp. Allar pantanir fyrir utan höfuðborgarsvæði munu verða sendar með Íslandspóst eða Dropp. 

Verð reiknast út frá þyngd sendingar.

Vara send með Dropp:
Viðskiptavinur getur valið hvort hann sæki vöru á N1 stöð næst sér eða fá pöntunina sína heimsenda. 

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi
hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við
upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð
vörunnar þann dag sem henni er skilað.

Móa&Mía ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Gölluð vara

Sé vara gölluð hvetjum við kaupandann að hafa samband við okkur. Viðskiptavinum er boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.

Útsölur og vöruskil:
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.

Lög og varnarþing 
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law

Spurningar

Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Netfang: info@miaverslun.is
Sími: +3544370000

Upplýsingar um seljanda

Móa&Mía ehf. 
Kt: 5403221630
Sími:  +3544370000
Netfang: info@miaverslun.is
Heimilisfang: Ármúli 40, 108, Reykjavík, Ísland.